slys

Neyðartilfelli

Neyðartilfelli
 
 
1. Úrslegnar tennur
 
Hafa skal strax samband við tannlækni.
 
Mikilvægt er að átta sig á því hvort um barnatönn eða fullorðinstönn er að ræða. Tannskiptum framtanna er venjulega lokið við 8 ára aldur.
Ef um barnatönn er að ræða þá er hún ekki sett aftur í.
 
 
Ef um fullorðinstönn er að ræða verður að bregðast hratt og rétt við:
Besta bráðahjálpin á úrsleginni fullorðinstönn er að koma henni strax aftur í holu sína.
Það verður þó að gera varlega. Taka skal um krónuhlutann og ef rótin er mjög óhrein skal skola hana í rennandi volgu vatni í nokkrar sekúndur áður en henni er komið fyrir.
 
Það má aldrei skrapa eða nudda óhreinindin af
 
Talið er að betra sé að setja tönn upp með örlitlum óhreinindum frekar en að hætta á að skaða frekar eða jafnvel skafa rótarslíður tannarinnar af. Slíðrirð ver tönnina og tryggir heilbrigði hennar. Mikilvægt er einnig að nota aðeins mjög léttan þrýsting eða kraft þegar tönninni er komið fyrir. Ef hægt er að koma tönninni fyrir skal halda henni með mjög léttum þrýstingi þar til komið er til tannlæknis.
 
 
Ef ég get ekki sett tönnina í aftur?
 
Ef ekki er mögulegt að koma tönninni fyrir í stæði sínu á nýjan leik án þess að þurfa að beita kröftum er sennilegt að fyrirstaða sé í holunni eða að hún sé að einhverju leyti fallin saman. Er þá best að bíða með að setja tönnina upp þar til komið er á tannlæknastofu. Á leið þangað er mikilvægt að halda tannrótarslíðrinu röku og um leið lifandi. Það er þó alls ekki sama hvaða vökvi er notaður til að halda slíðrinu röku og er vatn alls ekki nothæft til þess og ætti síðast að grípa til þess ráðs. Þá er munnvatn heldur skárra en þó einnig afar slæmur geymslustaður.
 
 
Besta vökvalausnin
Besta lausnin og sú sem oftast er tiltækust er mjólk. Jónaþrýstingur hennar er nálægt líkamsvökvum, pH er nálægt því sem frumur þrífast best í og sýnt hefur verið fram á að tannrótarslíðursfrumur geta lifað í henni í þó nokkurn tíma. Auk þes sa er lítið um örverur í gerilsneyddri mjólk. Rannsóknir hafa leitt í ljós að mjólkin er mun betri geymsluvökvi en munnvatn. Tennur sem hafa verið geymdar í mjólk í allt að 6 klukkustundir hafa nærri eins góðar batahorfur og þær tennur er voru settar strax aftur í holuna eftir að þær voru slegnar úr.
 
 
Ef mjólk er ekki tiltæk
Ef mjólk er ekki tiltæk og ekki mögulegt að koma tönninni fyrir aftur í sæti sínu er skárri kostur að setja hana í keypta saltvatnslausn í apóteki eða ef um allt um þrýtur munnvatn frekar en að geyma hana þurra. Saltvatnslausn sem er fengin tilbúin í apóteki er góður kostur í stuttan tíma en þar sem hún inniheldur ekki neina næringu fyrir frumurnar þá fara þær að skreppa saman og deyja eftir 2 til 3 tíma í lausninni.
 
 
Reyndu ekki að búa til saltvatslausn!
Aldrei skal reyna að búa til saltlausn með því að setja matarsalt í kranavatn því frumurnar eru viðkvæmar fyrir magni saltjóna í umhverfi sínu og má ekki miklu skeika. Munnvatn er næstsíðasti kosturinn ef ekkert annað finnst á undan kranavatni. Um tíma var munnvatn talið vera eins góður kostur og hvað annað, en nú er ljóst að jónastyrkur þess er langt frá því að vera hagstæður fyrir frumurnar. Einnig inniheldur munnvatn mikið magn örvera, sem geta haft áhrif á græðslu tannarinnar, sérstaklega ef rótarslíðrið er baðað í þeim í langan tíma. Ljóst er þó að munnvatn, hvort sem tönnin er geymd út við kinn sjúklingsins eða í dollu með söfnuðu munnvatni frá einum eða fleiri er betri kostur en kranavatn. Ef ekkert finnst til að geyma tönnina í mæla sumir með því að setja hana í kranavatn, en eins og áður sagði þá er það afarkostur og þá aðeins í mjög stuttan tíma en sennilega skárra en að geyma hana þurra, sem er það allra versta sem hægt er að gera við úrslegna tönn.
 
 
2. Brotin tönn
 
Ef tannkrónuhluti fullorðinstannar brotnar er stundum hægt að líma brotið aftur við tönnina. Nauðsynlegt er því að finna brotið ef hægt er. Hafa skal strax samband við tannlækni.
Hér má sjá hvernig gert var við tönnina með því einfaldlega að líma brotið. Ef brotið finnst ekki er hægt að gera við tönnina með því bæta plastblendi á brotna svæðið.
 

3. Tannpína
 
Leitið aðstoðar tannlæknis. Sé aðstoð ekki tiltæk er vænlegt að skola munn vel með volgu vatni og taka verkjalyf. Ekki setja verkjatöflu ofan í tannskemd eða láta hana liggja við veika tönn. Í sumum tilvikum liggja matarleifar milli tanna sem geta framkallað eða aukið óþægindi. Notið tannþráð til að hreinsa leifarnar burt, skolið með volgu vatni og burstið loks tennur með tannkremi.
 

Ef verkur er viðvarandi geta verkjalyf dugað skammt. Þá eru bakteríur yfirleitt komnar inn í taug tannarinnar og við það myndast mikill þrýstingsverkur. Nauðsynlegt er því að komast sem fyrst til tannlæknis. Þegar um tannpínu er að ræða þarf tannlæknirinn því yfirleitt að fara inn á rótarkerfi tannarinnar og hreinsa taugina í burtu til að verkirnir minnki.
 
Miklir verkir á endajaxlasvæði/Pericoronitis
Endajaxlar brjótast yfirleitt upp á yfirborðið í kringum tvítugsaldurinn. Éðlilegt er að finna örlítið til í þegar þeir eru umþað bil að brjótast upp. En það er verkur sem hverfur skjótt.
Á tímabili er jaxlinn að hálfu uppúr tannholdinu en að hálfu undir því. Þá geta skapast þær aðstæður að bakteríur og matarleifar komast undir tannholdið og geta valdið sýkingu í beininu aftan við jaxlinn. Þetta getur haft í för með sér að endajaxlasvæðið bólgnar og verður mjög viðkvæmt.
Það miklir verkir geta fylgt þessu ástandi að fólk missir svefn.
 
Nauðsynlegt er að leita sem fyrst til tannlæknis ef um slíkt ræðir.. Þörf getur verið á að spretta örlítið upp tannholdinu til að komast að óhreinidunum á bak við jaxlinn og hreinsa þau burt af svæðinu. Í einstaka tilfellum, ef sjúklingur fær m.a hita er þörf á sýklalyfjagjöf.
Þegar búið era ð ná fyrir sýkinguna þarf að meta hvort sé betra að fjarlægja jaxlinn svo að slíkt endurtaki sig ekki.
 
 4. Rótarbólga
 
Rótarbólga er sýking undir tönn sem oftast stafar af tannskemmd. Ef tönn verður skyndilega aum þegar bitið er saman eða bankað í hana getur það verið merki um byrjandi rótarbólgu. Stundum myndast kýli í munni þar sem rót tannar liggur í kjálka. Nauðsynlegt er að hafa samband við tannlækni sem fyrst.
Mikil bólga af völdum sýktra tannróta þarf að meðhöndla eins fljótt og unnt er, þar sem slíkt ástand getur beinlínis verið lífshættuegt.
Slíkar sýkingar eru oftar en ekki meðhöndlaðar með stórum skömmtum af sýklalyfjum. Einstaka tilfelli krefst sjúkrahússinnlagnar þar sem sjúklingur fær sýklayf í æð. Þá sérstaklega ef um sýkingar í augntönn í efri góm era ð ræða og sjúklingur er bólginn upp undir auga.