Fréttir
28.5.2010
Bursta tennurnar tvisvar á dag
Þeir sem ekki bursta tennurnar eru í 70% meiri hættu að fá hjartasjúkdóma en þeir sem bursta tennurnar tvisvar á dag. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar skoskra vísindamanna.
Rannsóknin sem náði til 11 þúsund einstaklinga og stóð í átta ár, sýnir samband hjartasjúkdóma og tannhirðu.
Þeir sem ekki bursta tennurnar eru í meiri hættu en þeir sem hugsa vel um tennurnar. Á rannsóknartímanum fengu 555 þátttakendur fyrir hjartað. Þar af létust 170 úr hjartaslagi.
Niðurstöðurnar sem birtar eru í breska læknatímaritinu The British Medical Journal staðfesta fyrri niðurstöður rannsókna um að samband sé milli sjúkdóma í munnholi og hjartasjúkdóma. Þeir sem ekki sinntu hreinlæti í munni greindust einnig með eggjahvítu í blóði sem talið er að tengist bólgum en bólgur auka hættu á að blóðtappar myndast sem geta leitt til hjartaslags.
Þetta er í fyrsta sinn sem vísindamenn kanna hvort það skipti máli fyrir tíðni hjartasjúkdóma hve oft fólk burstar tennurnar. Tekið var tillit til annarra áhættuþátta fyrir hjartasjúkdóma, eins og þjóðfélagsstöðu, offitu, ofþyngd, reykinga og erfða og fjölskyldu sögu og niðurstaðan var skýr. Þeir sem burstuðu tennurnar tvisvar á dag voru í minni hættu en aðrir að fá hjartasjúkdóma
9.3.2010
Bætt tannheilsa hjá leik- og grunnskólabörnum
Skýrsla starfshóps um tannheilsu og tannvernd.
sjá nánar
20.2.2010
Um 80% tannlækna með aðgengilega gjaldskrá og geri aðrir betur.
Neytendastofa kannaði á dögunum hvort tannlæknar hafi aðgengilega verðskrá á stofum sínum. Í ljós kom að 78% tannlækna hafi gjaldskrár sínar aðgengilegar neytendum þjónustunnar.
16.2.2010
Óeigingjarnt starf tannlækna
Þrjátíu börn fengu ókeypis tannlæknaþjónustu.
1.2.2010
Tannverndarvika hafin
Árleg tannverndarvika er hafin og er sérstök áhersla lögð á tannvernd barna.
25.1.2010
Barnatannkrem þurfa að innihalda meira en 1000ppm flúors til að hafa áhrif
Cochrane Oral Health Group birtir rannsókn sem segir að barnatannkrem sem innihalda minna en 1000ppm flúors geri sama gagn og flúorlaus tannkrem. Tannkrem sem innihalda 1000ppm flúor eða meira lækka hins vegar tíðni tannskemmda.
19.1.2010
Mikilvægt að fylgjast með koffínneyslu barna og unglinga
Í ljósi þess að talsvert framboð er nú af drykkjarvörum og öðrum matvælum sem innihalda koffín telur Lýðheilsustöð ástæðu til að hvetja foredra og aðra til að fylgjast vel með koffínneyslu barna og unglinga. Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða.
10.1.2010
Nýjar reglugerðir Sjúkratrygginga vegna endurgreiðslu tannlæknakostnaðar
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að Sjúkratryggingar Íslands endurgreiði sjúkratryggðum hluta umtalsverðs útlagðs kostnaðar við tannlækningar á árunum 2008 og 2009 vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa á tímabilinu.
Endurgreiða skal 75% af kostnaði umfram 40.000 krónur, sem sjúkratryggður hefur sjálfur borið og SÍ eða TR tekið þátt í að greiða, vegna framantalinna tilvika á árunum 2008 og 2009. Þó skal ekki endurgreiða þann kostnað sem sjúkratryggður hefur borið vegna þess að gjaldskrá tannlæknis er meira en 60% hærri en viðmiðunargjaldskrá SÍ.
Sækja þarf um endurgreiðsluna fyrir 1. febrúar 2010. Sjukra.is
Mynd












