Martha Hermannsdóttir
Martha Hermannsdóttir tannlæknir, cand. odont.
Martha útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri 2003. Hún stundaði tannlæknanám við Tannlæknadeild Háskóla Íslands og útkrifaðist þaðan árið 2009. Martha rekur sína eigin stofu við Þórunnarstræti á Akureyri og hefur gert frá árinu 2009. Hún kennir stundakennslu við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Akureyrar og sinnir tannviðgerðum og öðrum aðgerðum í munnholi í svæfingu á Læknastofum Akureyrar.
Martha veitir alla almenna tannlæknaþjónustu fyrir börn og fullorðna. Allt frá forvörnum og fegrunartannlækningum til tannplantaaðgerða.