Fréttir
13.12.2006
Lög um lækkun vsk og niðurfellingu vörugjalds taka gildi
Lögin koma til með að lækka súrsæta drykki um tugi prósenta því vörugjaldið var 8 kr per litra og vsk var 24,5% en verður 7% og vsk var reiknaður ofaná vörugjaldsverðið þannig að lækkunin er umtalsverð. Formaður sendi athugasemdir í eigin nafni þar sem stjórn hafði ekki ráðrúm til að tjá sig um málið
13.12.2006
Tannlækningar á Alþingi
Nú ber svo við að tannlækningar hafa verið til umræðu á þrennum vígstöðvum á alþingu
8.9.2006
Nýtt Tannlæknatal 1854-2007
Í tilefni þeirra tímamóta að Tannlæknafélag Íslands verður 80 ára á næsta ári hefur verið ákveðið að ráðast í undirbúning á útgáfu nýs Tannlæknatals, sem leysi af hólmi það rit sem kom út haustið 1997.
Í ritnefnd eiga sæti: Sigurjón Sigurðsson (formaður), Gunnar Rósarsson, Gunnar Þormar og Jónas B. Birgisson.
Ritnefndin hefur samið við Gunnlaug Haraldsson þjóðháttafræðing um að ritstýra verkinu, en hann hefur langa reynslu af samantekt slíkra rita og hafði m.a. á hendi ritstjórn eldri útgáfu (1997) ásamt ritnefnd.
Efnisöflun er komin á fullan skrið með endurskoðun (uppfærslu) eldri æviágripa og útsendingu eyðublaða til þeirra tannlækna sem bæst hafa í hópinn frá og með árinu 1998. Slíkt eyðublað er aðgengilegt á heimasíðu félagsins. Eyðublað
Til fróðleiks skal rifjað upp, að í eldri útgáfu (frá 1997) eru æviágrip alls 385 tannlækna, þar af í sérstökum viðauka 19 erlendra tannlækna af íslenskum uppruna. Frá júní 1998 til þessa dags hafa 48 tannlæknar lokið kandídatsprófi frá Háskóla Íslands og gera má ráð fyrir að 7-10 bætist í þann hóp fram til næsta sumar. Til viðbótar hafa nokkrir tannlæknar lokið próf erlendis, þannig að gera má ráð fyrir að heildarfjöldi æviágripa hinnar nýju útgáfu verði ekki mikið færri en 450.
Allir tannlæknar eru hvattir til að taka vel beiðni ritnefndar og ritstjóra um að senda inn umbeðnar upplýsingar við fyrstu hentugleika, svo að væntingar um farsælan vinnuferil útgáfunnar gangi eftir.
Með góðri félagskveðju,
Sigurjón Sigurðsson, Gunnar Rósarsson,
Gunnar Þormar,
Jónas B. Birgisson
8.8.2006
Vegna kennitölu á reikningum. Athugasemd frá TR
Athugasemd hefur borist frá TR vegna þess að kennitölu tannlæknis vantar æ oftar á reikninga frá tannlæknum.
Athugasemd TR hljóðar svo....
5.11.2005
Sigurjón Benediktsson nýr formaður TFÍ
Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík, var kjörinn formaður Tannlæknafélags Íslands á aðalfundi félagsins 3. nóvember. Einnig var kjörið í stjórn félagsins.
Nýja stjórn TFÍ skipa nú, auk Sigurjóns, þau Ingibjörg Sara Benediktsdóttir varaformaður, Kristín Gígja Einarsdóttir gjaldkeri, Magnús Jón Björnsson ritari og Stefán Hallur Jónsson meðstjórnandi. Allir stjórnarmenn eru nýir utan Stefán Hallur. Formaður er kjörinn til tveggja ára í senn.
26.10.2005
Varði doktorsritgerð við tannlæknadeild
Inga B. Árnadóttir, dósent við tannlæknadeild Háskóla Íslands, varði doktorsritgerð sína, Dental health and related lifestyle factors in Iceland teenagers, við tannlæknadeildina laugardaginn 15. október síðastliðinn.
25.10.2005
Tannlæknafélagið styður reykingabann
Á málþingi Tannlæknafélagsins fyrir skömmu var fjallað um áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna. Þar kom fram að reykingar hafa skaðleg áhrif á tannheilsuna sem endurspeglast m.a. í tannholdssjúkdómum, tannlosi, slakari svörun við meðferðarúrræðum og jafnvel stórfelldum tannmissi.
20.10.2005
Varði doktorsritgerð við tannlæknadeild
Inga B. Árnadóttir, dósent við tannlæknadeild Háskóla Íslands, varði doktorsritgerð sína, Dental health and related lifestyle factors in Iceland teenagers, við tannlæknadeildina laugardaginn 15. október síðastliðinn.
31.5.2005
Varist bábiljur!
Mynd













