Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

7.12.2009

Tímarit á Hvar.is

Viljum benda félagsmönnum á að hægt er að skoða tímaritagreinar á vefnum gegnum Hvar.is sem er landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum.  Hægt er að skoða m.a. tannlæknatímarit með því að fara í tímaritalista og er aðgangurinn endurgjaldslaus hjá notendum á Íslandi.

Hvar.is

24.11.2009

Ný rannsókn frá Noregi sýnir að kvenkyns starfsfólk í

tannlækningageiranum, sem komist hefur í tæri við kvikasilfur er ekki í aukinni áhættu á að fæða barn með fæðingargalla eða aðra meðgöngukvilla s.s. fósturlát.

Sjá nánar á heimasíðu Norska tannlæknafélagsins

14.11.2009

Stjórn Tannlæknafélagi Íslands 2009 - 2010

Á aðalfundi félagsins þ. 12. nóvember s.l. var Sigurður Benediktsson kosinn formaður, aðrir í aðalstjórn eru:
Stefán Hallur Jónsson varaformaður,
Kristín Heimisdóttir gjaldkeri,
Börkur Thoroddsen ritari, 
Elfa Guðmundsdóttir meðstjórnandi.

Í varastjórn eru:
Eva Guðrún Sveinsdóttir
Ingibjörg Sara Benediktsdóttir

3.11.2009

Ársþing TFÍ verður haldið dagana 13. og 14. nóvember 2009

Skráning hjá Íslandsmót ehf

Sími hjá Íslandsmótum er 534 7010

Dagskrá þingsins

14.9.2009

Samninganefnd Tannlæknafélags Íslands og FTAT

Samninganefnd Tannlæknafélags Íslands og FTAT hafa komist að samkomulagi með 3.5% launahækkun er átti að taka gildi  1. júlí. Verður samkomulagið þannig 1.8% kemur á laun 1. ágúst n.k. og 1.7% kemur á laun 1. nóvember 2009. 2.5% launahækkun sem átti að taka gildi 1. janúar 2010 færist til 1. júní 2010.



11.9.2009

Góður og upplýsandi fundur hjá Sigurjóni Benediktssyni.

Bestu þakkir fyrir Sigurjón. Það vöknuðu margar spurningar. Hér er krækja inn á starfsleyfisumsóknir á Norðurlöndunum og einn listi yfir lausar stöður í Noregi.

Norrænar reglur um tannlækningaleyfi

Atvinnuauglýsingar

1.9.2009

Fer fyrir tannréttingasérfræðingum

89. ráðstefna evrópskra tannréttingasérfræðinga verður haldin hér á landi í júní árið 2013. Ráðstefnan verður haldin í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í Reykjavík sem til stendur að vígja í lok árs 2011.

arni thordar

Forseti samtakanna árin 2012-2013 verður Árni Þórðarson, tannlæknir og sérfræðingur í tannréttingum. Árni lauk tannlæknanámi frá Háskóla Íslands árið 1982, sérnámi í tannréttingum frá Óslóarháskóla árið 1986 og hlaut viðurkenningu The European Board of Orthodontics árið 2003. Hann var stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands og síðar lektor í tannréttingum við sömu deild til ársins 2000. »Það er mikill heiður og viðurkenning fyrir mig og kollega mína hér á landi að ég skuli hafa verið kjörinn forseti Samtaka evrópskra tannréttingasérfræðinga, fyrstur Íslendinga,« segir Árni í tilkynningu.

13.8.2009

Vagnýtar krækjur fyrir tannlækna vegna svínainflúensunnar

27.5.2009

Hjálparvaktin 23. maí

Tannlæknafélagið vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lagt hafa fram óeigingjarnt starf á hjálparvöktum tannlækna.

Laugardaginn 23. maí var mikil aðsókn eins og áður og færri komust að en vildu.
Loka varð á skráningu eftir 45 mínútur og þurftu því miður mörg börn frá að hverfa.
Þetta var fjórða og síðasta vaktin er boltinn nú hjá stjórnvöldum.

Kærar þakkir til ykkar allra og bestu óskir um gleðilegt sumar.

minnkud007

 

19.5.2009

Tannheilsa íslenskra barna - Erum við að tala um sama hlutinn?

Grein Helga Hansonar sem birtist í Morgunblaðinu 19. maí s.l.

UNDANFARIÐ hefur farið hátt í fjölmiðlum umræða um tannvandamál hóps barna þar sem foreldrar hafa ekki séð sér fært að fara með börnin til tannlæknis undanfarin ár. Þessi hópur hefur stækkað jafnframt því sem endurgreiðsla hins opinbera á tannlæknakostnaði barna og ungmenna hefur minnkað. Það er óumdeilanlegt. Hins vegar hefur mér fundist sumir og sérstaklega stjórnmálamenn nota tækifærið til þess að beina umræðunni inn á aðrar brautir þar sem bæði forsendur og lausnir liggja ekki eins beint við. Spurningum um hvort tannheilsu íslenskra barna fari hrakandi, er réttilega velt upp og látið í veðri vaka að lausnirnar á bráðavandanum felist í meiriháttar skipulagsbreytingum og forvarnarátaki.



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar