Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

11.5.2009

Hjálparvaktin 9. maí

Bestu þakkir til allra þeirra tannlækna, tanntækna og tannfræðinga sem hjálpuðust að á hjálparvaktinni 9. maí. Þurftum að loka eftir klukkutíma þá var 61 barn komið á skrá. Við buðum til okkar nokkuð mörgum til að skoða ástandið og ræða við okkur og Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu mætti sem og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir (fyrrverandi félagsmálaráðherra) og Lára Björnsdóttir formaður Velferðarvaktarinnar. Svona heimsóknir þar sem fólk sér það svart á hvítu hvernig ástandið er er mun áhrifaríkara en allar heimsins skýrslur. Morgunblaðið sendi sitt fólk og fékk þetta framtak okkar heila síðu í Mogganum. Nú er boltinn hjá ráðamönnum þjóðarinnar.

Síðasta Hjálparvaktin verður svo 23. maí.

Ingibjörg S. Benediktsdóttir

Hjálparvaktin allir

Bragi og co

Ásta Ragnheiður

21.4.2009

Áfall að sjá hve aðsóknin var mikil - Frétt í Morgunblaði 21. apríl

»ÞAÐ getur enginn heilbrigðisráðherra orðið vitni að þessari reynslu sem við urðum fyrir um síðustu helgi [í Tanngarði, húsakynnum tannlæknadeildar Háskóla Íslands], án þess að gera eitthvað,« segir Ögmundur Jónsson heilbrigðisráðherra. Áfall hafi verið að sjá hve aðsóknin og þörf þeirra sem leituðu í ókeypis aðstoð Tannlæknafélags Íslands fyrir börn og unglinga hafi verið mikil. Eftir klukkutíma voru 60 börn komin á skrá og ljóst að ekki yrði fleirum sinnt þann daginn. Skemmdir hjá sumum reyndust þá meiri en tannlækna hafði órað fyrir. »Það er alveg augljóst að ríkið verður að endurskoða aðkomu sína að þessum málum og verður að koma á miklu virkari hátt inn í tannheilsu barna og unglinga,« segir Ögmundur og kveður óheillaspor er farið var með tannlækningar út úr skólum á sínum tíma. »Það er þó ekki formið sem skiptir öllu, heldur að eftirlitinu og tannhirðunni sé fylgt eftir. Ég mun gera ráðstafanir til þess að það fari fram rannsókn og settar verði fram tillögur um hvernig þessi mál verði færð til betri vegar á eins markvissan og skjótvirkan hátt og unnt er.« Hafi hann fullan hug á að fá skýrslu um úrbætur afhenta á næstu vikum, gegni hann áfram embætti heilbrigðisráðherra.

Spurður hvort ókeypis tannlækningar fyrir börn og unglinga geti orðið að veruleika, segir hann það vissulega vera Vinstri hreyfingunni - grænu framboði keppikefli og svo verði áfram. annaei@mbl.is

Úr fréttatíma sjónvarps laugardaginn 18. apríl

18.4.2009

Myndir af hjálparvakt tannlækna 18. apríl 2009

Ekki gafst mikill tími til að mynda. En hér er hluti hópsins sem vann þetta góða sjálfboðaliðsstarf í dag. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir frábæra frammistöðu undir erfiðum og krefjandi aðstæðum.

hv3

Heilbrigðisráðherra Ögmundur Jónasson ásamt fríðu föruneyti kynnti sér ástandið og óhætt er að fullyrða að allir þeir sem mættu þarna í dag hafi verið verulega áhyggjufullir þegar þeir sáu hversu grafalvarlegt ástandið er. Takið eftir birtunni í kringum tannlæknana á myndinni...

allir á hjálparvakt

 

 

18.4.2009

Hjálparvakt tannlækna 18.apríl 2009

Þetta var ótrúleg vakt! Þurftum að loka eftir klukkutíma þá voru 60 börn komin á skrá. Ástandið á krökkunum sem komu í dag var mun skelfilegra en síðast. Það voru margar tennur dregnar úr í dag.
Það á ekki að þekkjast í siðmenntuðu landi að það þurfi sjálfboðaliða til að sinna tannpínu í börnum. Þetta er þjóðinni til skammar og við vonum að með þessu framtaki tannlækna vakni ráðamenn þjóðarinnar af þessum þyrnirósarsvefni.
Formaður var eins og símadama að reyna að ná í ráðamenn þjóðarinnar til að bjóða þeim að tala við fólkið í landinu og það "kraftaverk" gerðist að Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra mætti með fríðu föruneyti talaði við okkur og einhverja foreldra. Held að allir þeir sem mættu þarna í dag hafi verið hálfpartinn í losti og með kökk í hálsinum yfir þessu ástandi.
Ingibjörg S. Benediktsdóttir, formaður TFÍ
 

16.4.2009

Hjálparvakt tannlækna fyrir börn og unglinga sem búa við kröpp kjör

Tannlæknafélag Íslands og Tannlæknadeild Háskóla Íslands munu nú á laugardaginn, 18. apríl, bjóða barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör upp á ókeypis tannlæknaþjónustu. Þjónustan er fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri og verður veitt milli kl. 10:00 og 13:00 í húsnæði Tannlæknadeildar Háskóla Íslands, Læknagarði, að Vatnsmýrarvegi 16. Tannlæknar buðu fyrst upp á þessa þjónustu laugardaginn 4. apríl og alls komu yfir 30 börn og unglingar í skoðun.

Fjárhagslegar aðstæður margra heimila hafa breyst til hins verra á undanförnum mánuðum og því viðbúið að mörg heimili neyðist til að spara við sig þegar kemur að tannviðgerðum og eftirliti hjá börnum. Þá er tannheilsa íslenskra barna sú versta á Norðurlöndum og íslensk börn eru að meðaltali með tvöfalt fleiri skemmdar tennur en börn á hinum Norðurlöndunum.

Því hafa tannlæknar ákveðið að koma til móts við þau heimili sem erfiðast eiga uppdráttar með sjálfboðavinnu við skoðun og viðgerðir tanna hjá börnum og unglingum. Ekki er tekið við tímapöntunum en ráðstafanir eru gerðar til þess að biðtími verði ávallt hóflegur. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Tannlæknadeild Háskóla Íslands í síma 525-4850.

Reykjavík 16. apríl 2009.
Nánari upplýsingar:
Ingibjörg S. Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands í síma 896-1547.

Féttatilkynning frá Hjálparvakt tannlækna

 

 

2.4.2009

Hjálparvakt tannlækna, fréttatilkynning

Formaður Tannlæknafélags Íslands þakkar tannlæknum frábærar viðtökur.

Hjálparvakt tannlækna ( doc, 24 kb )

2.4.2009

Hjálparvakt tannlækna fyrir börn og unglinga

Hjálparvakt Tannlæknafélags Íslands og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands tekur til starfa n.k. laugardag. Nánari upplýsingar með því að smella á krækjuna.

Hjálparvaktin 2009 ( pdf, 764 kb )



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar