Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

23.3.2009

Að gefnu tilefni

Tannlæknafélagi Íslands hefur borist fyrirspurn frá félaga þar sem spurst er fyrir um það hvort félagið hafi styrkt stjórnmálaflokka í gegnum tíðinna.

Samkvæmt okkar upplýsingum þ.e.a.s. frá því að Anný hóf hér störf fyrir rúmum 15 árum þá hefur TFÍ aldrei styrkt stjórnmálaflokka.

Styrkir TFÍ hafa farið til góðgerðamála, s.s. Rauða krossins og Geðhjálpar.

17.3.2009

Fjármálaráðuneytið hefur að tillögu Fjármálaeftirlitsins skipað Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands umsjónaraðila. Nánari fréttir til félagsmanna um leið og þær berast TFÍ.

Umsjónarmenn skipaðir
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins leikur grunur á því að sjóðirnir hafi fjárfest of mikið í skuldabréfum ákveðinna félaga, þar á meðal í Landsbankanum. Þá herma heimildir Morgunblaðsins að mörg þeirra félaga sem fjárfest hafi verið í séu nú í greiðslustöðvun eða komin í þrot.
Forsvarsmenn sjóðanna eru einnig grunaðir um að gefa rangar skýrslur yfir fjárfestingar sínar.

23.2.2009

Nýr formaður hjá FTAT

Félag tanntækna og aðstoðarfólks tannlækna hefur opnað skrifstofu að Háaleitisbraut 58, 108 Reykjavík.

Skrifstofan er opinn alla virka daga frá 10:00 – 14.00 sími á skrifstofu er 571-0585. Starfsmaður á skrifstofu er  Kristín Hraundal.

Nýr formaður og stjórn er í félaginu.
Formaður: Inger Steinsson
Varaformaður  Erla Guðjónsdóttir
Ritari Guðrún Karlsdóttir
Meðstjórnendur Hildur Backmann og Kristín Ragnarsdóttir.

Markmið nýrrar stjórnar er að gera félagið sýnilegra og opnara bæði fyrir hinn almenna félagsmann og þá sem eru utan þess.

Að hafa metnaðarfulla fæðslu á ári hverju. Að virkja meira félagskonur til starfa.

12.2.2009

Uppörvunarbréf frá Council of European Dentists

Skrifstofunni hefur borist bréf frá CED. Þetta er holl og góð lesning fyrir alla tannlækna enda kemur þar fram að við erum í alheimskreppu og ástandið hér á landi er ekki ólíkt því og er í öðrum Evrópulöndum.

Góða lesningu

Ingibjörg

 

2.2.2009

Óskum nýrri ríkisstjórn góðs gengis. Tengingar við tannlækna

Eins og allir vita tók ný ríkisstjórn við völdum hér á landi þann 1. febrúar. Er vonandi að ný ríkisstjórn sinni málefnum tannheilsu Íslendinga af meiri myndarbrag en undanfarnar ríkisstjórnir hafa gert. Það er líka gaman að segja frá því að í fyrsta skipti svo vitað sé tengjast tannlæknar ríkisstjórninni vel og náið. Eiginmaður dóms- og kirkjumálaráðherrans Rögnu Árnadóttur er Magnús Jón Björnsson tannlæknirinn góðkunni og fyrrverandi ritari Tannlæknafélagsins og faðir viðskiptaráðherrans Gylfa Magnússonar er Magnús R. Gíslason fyrrverandi yfirtannlæknir í Heilbrigðisráðuneytinu og fyrrverandi formaður Tannlæknafélagsins.

Tannlæknafélagið óskar þeim nöfnum til hamingju með annars vegar eiginkonuna og soninn hins vegar.

(Ingibjörg og Anný)

27.1.2009

Grein eftir Kristínu Heimisdóttur sem birtist í MBL 27.01.09

TIL ársins 1992 var í gildi samningur á milli tannréttingasérfræðinga og Tryggingastofnunar ríkisins (TR, nú Sjúkratrygginga Íslands - SÍ) um endurgreiðslu á tannréttingum. Samningurinn náði til flestra tryggðra sjúklinga með bit- og tannskekkjur og var verulegur hluti af kostnaði við tannréttinguna greiddur af TR. Árið 1992 var samningum sagt upp, þar sem tannréttingasérfræðingar sáu sér ekki fært að reka stofur sínar á þeim fjárhagslegu forsendum sem TR gaf sér. Það þýddi að þeir sjúklingar sem þurftu á tannréttingum að halda fengu um tíma ekkert endurgreitt. Eftir nokkurt þóf var styrk komið á, sem í fyrstu var 100 þúsund, en var hækkaður í 150 þúsund 1. maí 2002. Hefði sá styrkur verið vísitölutengdur og fylgt eðlilegu verðlagi væri hann yfir 220 þúsund krónur í dag (m.v. vísitölu neysluverðs - Hagstofa Íslands). Styrkurinn fæst greiddur ef tannréttingameðferð með föstum tækjum hefst fyrir 21 árs aldur.

22.1.2009

Tanntúrismi

Helgi Hanson benti okkur á þessa frétt úr norska Tannlæknablaðinu. Tanntúrismi- ekki alltaf jólin segir hann.
Skoða krækju

19.1.2009

Styrkir úr Vísindasjóði TFÍ

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Vísindasjóði TFÍ. Tilgangur sjóðsins er að styrkja rannsóknir og stuðla að vísindastörfum á sviði tannlæknisfræði á Íslandi. Reglur sjóðsins kveða svo á um að styrkbeiðnir séu gjaldgengar frá öllum tannlæknum og öðrum vísindamönnum til tiltekinna verkefna, greiðslu kostnaðar við rann-sóknir og útgáfu á ritverkum á sviði tannlæknisfræða hér á landi.

Í umsóknum skal greina frá því við-fangsefni sem óskað er eftir styrk til, áætlunum um kostnað og tímalengd rannsóknar og fjárframlögum frá öðrum til verksins. Að jafnaði veitir sjóðurinn ekki fé til tækjakaupa. Að öðru jöfnu skal sá hafa forgang sem hefur ekki fengið úthlutun úr sjóðnum áður.

Félagsmönnum, sem vinna að rannsóknarverkefnum, er bent á að hægt er að sækja um styrk úr sjóðnum og er umsóknarfrestur til 1. júni 2009. Umsóknir skulu stílaðar á formann Tannlæknafélags Íslands og sendar í Síðumúla 35, pósthólf 8596, 128 Reykjavík

 

22.12.2008

Rammasamningur SÍ

Tannlæknar - Forvarnareftirlit barna

Til að sinna forvarnareftirliti hjá ákveðnum aldurshópum barna sem eru sjúkratryggð skv. lögum nr. 112/2008 óska Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) eftir sjálfstætt starfandi tannlæknum til að gerast aðilar að rammasamningi frá 1. janúar 2009.

Sambærileg þjónusta hefur hingað til verið veitt samkvæmt samningi samninganefndar heilbrigðisráðherra og Tannlæknafélags Íslands.

Þeir sem áhuga hafa á að veita ofangreinda þjónustu geta nálgast rammasamninginn og umsóknareyðublað á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands www.sjukratryggingar.is

Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Björnsdóttir, framkvæmdastjóri samninganefndar, í síma 560 4539 eða í tölvupósti gudlaug.bjornsdottir@sjukratryggingar.is 

Auglýsing þessi byggir á 40. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar