Fréttir
23.11.2007
Tannlæknatal - 1854-2007
Tannlæknafélag Íslands hefur gefið út nýtt tannlæknatal, Tannlæknatal 1854-2007. Ritstjóri þess er Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðingur, en ritnefnd skipuðu eftirtaldir tannlæknar:
Hið nýja tannlæknatal leysir af hólmi eldri útgáfu frá 1997. Ritið er í stóru broti og vönduðu bandi, alls 596 bls. að stærð. Það inniheldur æviágrip allra íslenskra tannnlækna frá 1854, en á því ári lauk fyrsti Íslendingurinn (Grímur Þorláksson) kandídatsprófi í tannlækningum frá Kaupmannahafnarháskóla. Í ritinu eru 454 æviágrip með ljósmyndum af nær öllum tannlæknum, lífs og liðnum.
13.11.2007
Ályktanir stjórnar TFÍ
- Stjórn Tannlæknafélags Íslands lýsir því yfir að framlög hins opinbera til tannlækningatrygginga í frumvarpi að fjárlögum 2008 eru hvorki í samræmi við umræður né loforð, hvað þá í takt við hástemmdar yfirlýsingar stjórnmálamanna fyrir síðustu kosningar.
Tannlæknafélagið gekk til samninga við heilbrigðisráðuneytið með þeim formerkjum að sá samningur myndi í engu rýra aðrar styrkveitingar til tryggingaþega tannlæknatrygginga. Við það á greinilega ekki að standa.
9.11.2007
Tannlæknafélag Íslands 80 ára
Tannlæknafélag Íslands fagnar þessa dagana 80 ára afmæli sínu en félagið var stofnað í Reykjavík 30. október 1927. Hlutverk og tilgangur félagsins hefur í gegnum árin verið að efla samvinnu og einingu meðal tannlækna og gæta réttinda þeirra og hagsmuna. Félagið sér það einnig sem skyldu sína að upplýsa og fræða almenning og heilbrigðisyfirvöld um tannlækningar og tannheilsu.
27.9.2007
Tannskemmdir
Tannskemmdir hafa aukist mikið að undanförnu hérlendis og voru árið 2005 helmingi fleirri en á hinum Norðurlöndunum, miðað við 12 ára börn.
Þetta er sorglegt, því að stutt er síðan að okkur tókst að fækka tannskemmdum um 75% á 15 ára tímabili, aðallega með fræðslu og forvarnaraðgerðum.
13.9.2007
Nýr vefur Doktor.is
Nýtt skipulag og breyttar áherslur
Nýr og endurbættur vefur Doktor.is var opnaður í dag. Hann hefur um árabil verið einn vinsælasti vefur landsins og fjölsóttasti heilsuvefurinn. Vefurinn hefur fengið nýtt útlit og skipulag hans hefur verið einfaldað til að auðvelda aðgengi að þeim fjölbreyttu upplýsingum sem vefurinn hefur að geyma.
10.9.2007
reyklaus.is - nýtt tæki í baráttunni við tóbaksfíknina
Heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, opnaði formlega á Lýðheilsustöð að viðstöddu fjölmenni, gagnvirku heimasíðuna reyklaus.is. Heimasíðan er nýtt ,,tæki" sem þeir geta nýtt sér sem vilja hætta að reykja og er aðstoðin, sem hægt er að fá á síðunni, notandanum að kostnaðarlausu.
30.8.2007
Svæfingar í tannlækningum
Fundur um svæfingar við tannlæknisaðgerðir var haldinn á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fimmtudaginn 23. ágúst s.l..
27.8.2007
Til athugunar vegna nýgerðs samnings TFÍ og heilbrigðisráðuneytis
- Í samningnum var kveðið á um að breyta endurgreiðslugjaldskrá ráðherra þannig að nýgerður samningur kæmi ekki í veg fyrir að endurgreiðsla TR næði yfir röntgenmyndir hjá samningshópunum.
Mynd












