Tannréttingar

Berglind Jóhannsdóttir

Hlíðasmára 17, Kópavogur
Sími: 564 6640
Hjólastólaaðgengi: Já

Veitum tannréttingaþjónustu fyrir börn og fullorðna.

Sjá nánar á heimasíðu okkar www.profill.is

 

 

 

 

Berglind útskrifaðist sem tannlæknir frá tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 1989. Sérnám í tannréttingum stundaði Berglind á árunum 1992 – 1995 við Háskólann í Bergen, Noregi. Hún fékk sérfræðiréttindi í Noregi árið 1995 og á Íslandi árið 1996.Samfara sérnámi sínu hóf Berglind rannsókn á tíðni bitskekkju og formi andlitsbeina hjá íslenskum börnum. Síðar varði Berglind doktorsritgerð sína “Prevalence of malocclusion, craniofacial morphology and heritability in Iceland” eða "Tíðni bitskekkju, form og stærðir andlitsbeina og erfðastuðull á Íslandi". Berglind hefur birt vísindagreinar í virtum erlendum tímaritum í tannréttingum, ásamt fjölda greina um tannréttingar í Tannlæknablaðinu.
Að framhaldsnámi loknu hóf Berglind störf við tannréttingar í Reykjavík með dr. Þórði Eydal Magnússyni, sérfræðingi í tannréttingum. Núverandi stofa Berglindar að Hlíðasmára 17, Kópavogi, hefur verið starfrækt frá árinu 2000.

Samhliða starfseminni á tannlæknastofunni kennir Berglind tannréttingar við tannlæknadeild Háskóla Íslands.

Opnunartím stofunnar er frá 8-16 mán til fim. og 8-14 á föstudögum.